Eigandi er Háls Þverbrekka ehf. Halastjarna er við þjóðveg 1 í um 20 mín akstri frá Akureyri, höfuðstað norðurlands. Leitast er við að bjóða gestum uppá fallegan og góðan mat í skemmtilegu umhverfi. Matseðilinn er breytilegur frá degi til dags og innihald miðast við hvað er mest spennandi og ferskast á fiskimarkaðnum, matjurtagarðinu, náttúrunni og hjá slátraranum.  Veitingahúsið tekur um 25 manns í sæti og betra er að panta borð þar sem einungis 4 borð eru á staðnum.

- Lokað -


Halastjarna stendur á jörðinni Háls undir Hraundranga. Mjög skemmtileg og vinsæl gönguleið er frá Halastjörnu upp að Hraunsvatni, en það er um 2 klst lystaukandi ganga sem hentar flestum. Í nánasta nágrenni eða um 5 mín göngufæri er gistiheimilið Engimýri.

 

HALASTJARNA YFIR HÁLSI  VEITINGAHÚS, HÁLSI 601 AKUREYRI

HALASTJARNA(hjá)HALASTJARNA.IS 

SÍMI:                46...        KT: 540397-2019